Kjartan og Lovísa í Bergen

Vekjaraklukkan okkar (iðnaðarmenn)
Eins gaman og það er að búa í nýbýli, þá hefur það sína vankanta þegar það er ekki búið að klára alla bygginguna. Í gærmorgun voru iðnaðarmennirnir svo góðir að vekja okkur milli 7 og 8 með borum og hömrum, síðan tók við brunavarnarkerfið. Upp úr átta byrjaði síðan einn þeirra að bora gat rétt fyrir utan svefnherbergisgluggann okkar. Hann var, algjörlega án þess að vera að ýkja, svona 15-20 mínútur að bora þetta helvítis gat!

Þetta var síðan nánast það eina sem maður heyrði frá þeim það sem eftir var dags, fyrir utan eina gröfu hérna fyrir utan sem maður heyrir nánast ekkert í. Mér hefði nú alveg fundist í lagi að bíða með boranirnar fram yfir hádegi, svona fyrst það var svona lítið sem þurfti að bora.

Fríloft
Góðan daginn, gott fólk (og Ari Páll).

Hér kemur ný færsla, fersk úr ofninum. Af okkur er það helst að frétta að við erum búin að skrá okkur í útivistarklúbb sem heitir BSI-Friluft, og í honum eru námsmenn búsettir í Bergen. Um helgina var svo ferð til Hallingskeid(borið fram: Hallingsjæd), sem er járnbrautarstöð lengst úti í rassgati. Það liggja ekki einu sinni akvegir þangað – bara hjólaleið sem liggur þar framhjá. Mjög fallegur staður samt og nóg af kræki- og bláberjum. Tjaldborg hópsins var við Kreklingbu (Krækiberjabú), kofa sem tilheyrir honum. Á föstudagskvöld voru síðan “tónleikar” inn í Kreklingbu þar sem við fengum að heyra mishallærislega tónlist sungna á Norsku og Ensku.

Lovísa að taka til í tjaldi.

Á laugardeginum löbbuðum við svo upp á fjall sem ég man ekki hvað heitir en er fjórtán-hundruð-og-eitthvað metra yfir sjávarmáli (Við byrjuðum reyndar í 1000-1100 metrum, en það er aukaatriði). Á toppnum fengum við snjókomu og slyddu og komumst að því að við vorum ekki nógu vel klædd. Úps! Þegar niður var komið tók síðan við grillerí og meiri tónlist um kvöldið.

Það var kalt á toppnum. Lovísa er þarna lengst til hægri.

Sumarsvefnpokarnir sem við vorum með(annar í láni og hinn keyptur á 100NOK í Europris) duguðu ekki alveg vel svona hátt uppi, þar sem hitinn var örugglega ekki nema 5-8°C yfir nóttina. Þetta var samt í heildina mjög góð ferð. Við kynntumst fullt af skemmtilegu fólki og fengum tækifæri til að æfa okkur í Norskunni. Det var veldig bra!

Annars er frekar lítið að frétta bara. Lovísa hefur það mjög gott á nýja vinnustaðnum sínum og lofar mikið Hafrannsóknarstofnunina hér í landi. Þar sem ég vann nú við að þjónusta tölvur og kerfi Hafró heima fyrir 3-4 árum, þá get ég nú alveg sagt að það virðist sem allt hérna sé þó nokkrum árum á undan – allavega varðandi tækjabúnað.

Ég er svo bara ennþá á fullu að leita mér að vinnu. Nóg af vinnu í boði fyrir mann með mína reynslu og þekkingu, en það stendur í vegi fyrir mér hvað við ætlum að stoppa stutt og að ég er ekki ennþá orðinn nógu sleipur í Norskunni.

Örstutt uppfærsla
1. Nýja íbúðin fer nú að líkjast heimili. Ikea hefur ákveðið að gera okkur að sérstökum heiðurs viðskiptavinum. Fengum rúm í gær sem við löbbuðum eftir í mestu rigningu sem ég hef upplifað! Núna er sófinn það eina sem er eftir en við fáum hann einhvertíma á næstunni.

2. Við skráðum okkur í fjallaferðaklúbb og fyrsta ferðin er um helgina. Förum með lest í 2 tíma að einhverjum kofa sem klúbburinn á. Gistum í tjaldi, útitónleikar á kvöldin, grillum, förum í fjallgöngur og tínum ber. Get ekki beðið!

3. Við erum komin með norsk símanúmer fyrir þá sem þurfa nauðsynlega að ná í okkur.

Kjartan: +47 4715 7713

Lovísa:  +47 4715 7714

1/7
Umhverfis Bergen eru 7 fjöll (sem ásamt nálægð við Atlantshafið er ástæðan fyrir allri þessari helvítis rigningu hérna!) sem vinsælt er að ganga upp á. Þau eru:

Lyderhorn - 396 mys

Damsgårdsfjellet- 317 mys

Løvstakken - 477 mys

Ulriken – 631 mys

Fløyfjellet - 399 mys

Rundemanen - 560 mys

Sandviksfløyen - 392 mys

Við höfum ákveðið að labba á öll þessi fjöll meðan við erum hérna - Mér skilst að það sé skylda að labba á öll fjöllin ef maður vill kalla sig Bergen-búa. Í gær hoppuðum við upp á Løvstakken, sem er það þriðja hæsta. Það gekk alveg ágætlega, þrátt fyrir að við höfum nú ekki alveg vitað hvaða leið við áttum að fara. Við komumst allavega á toppinn þar sem var geðveikt útsýni og fáránlegur vindur. Á leiðinni hámuðum við í okkur bláber. Ég skil ekki af hverju ég verð allur berjablár bæði í framan og á höndunum þegar ég borða bláber, en þegar Lovísa fær sér, þá sér ekkert á henni!

Nokkrar myndir, smellið á þær til að skoða stærri:

Það var smá vindur á toppnum...

Frábært útsýni, en það hefði samt mátt vera minni þoka.

Á einum stað var sett handrið, þar sem það var svo bratt þar.

Það eru bláber í Noregi!

Stígur

Núna eru þá bara 6 fjöll eftir, það ætti ekki að vera mikið mál.

Bybanen
Bybanen er nýtt almenningssamgöngutæki hér í Bergen. Fyrsti hlutinn opnaði bara núna í sumar en það stendur víst til að hafa bybanen um alla borgina í framtíðinni. Í augnablikinu er bara ein leið, frá stórri strætóstöð ofarlega í Bergen og niður í miðbæ með einhverjum 15 stoppum eða svo á leiðinni. Fólk hefur mjög mismunandi skoðanir á bybanen því flestar strætóleiðir hafa breyst í kjölfarið og reynt að fá alla til að taka bybanen í bæinn því hugmyndin er að það fari enginn strætó niður í miðbæ.

En hvað um það. Bybanen hentar okkur mjög vel. Teinarnir liggja í göngum undir íbúðinni okkar svo við þurfum bara rétt að stíga út og labba nokkra metra til að komast niður í bæ. Það skal þó taka fram að hann rafmagnsdrifinn svo maður verður ekkert var við hann þegar hann fer framhjá. Það er dálítið dýrt að kaupa stakan miða en við fáum vonandi kortið okkar bráðum og þá er það vesen úr sögunni. Með öðrum orðum, ég elska bybanen, eða gerði það allavega þangað til seinni partinn í gær.

Það var nefnilega smá vesen í gær þegar ég var í sakleysi mínu að reyna að komast heim eftir vinnudaginn. Fyrst þurfti ég að bíða í langri röð til að kaupa miða, svo tróðst ég inní einn vagn og stóð upp á endann þétt við næsta mann í heitum og loftlausum vagninum í um 5 mínútur áður en okkur var tilkynnt að hann væri bilaður og færi ekki. Þá tróðumst við öll inní næsta vagn sem var líka heitur og loftlaus en komumst allavegana af stað. Allt gekk vel nokkrar stoppistöðvar þangað til allt í einu bybanen stöðvaði hálfur inni í göngum. Eftir mjög svo undarlegar tilkynningar frá vagnstjóranum um að fólk sem ætlaði út hér þyrfti að fara á næstu stöð og annað í þeim dúr tilkynnti hann hópnum að hann gæti ekki opnað dyrnar. Þar sátum við föst í um 20 mínútur áður en honum tókst að opna eina hurð og ég endaði á að labba heim þaðan sem tók um 30 mín.

Það er eitthvað mjög óskemmtilegt við það að vera klesstur við næsta mann í vagni sem ekki er hægt að opna hurðarnar á. Sérstaklega þegar manni hættir við að fá innilokunarkennd. Ég sá meira að segja eina stelpu brynna músum.

Ég elska bybanen ekki lengur. Kannski á morgun.

Bybanen að stoppa hér á Fantoft

Myndir!
Vorum að henda inn myndagalleríi. Smellið á myndina hér fyrir neðan til að skoða.

Íbúð og fleira
Það er ekkert lát á blíðunni hér í Bergen. Það 5 daga rigningatímabil sem átti að yfirtaka svæði hefur greinilega fokið eitthvað annað því hér er spáð bara glampandi sól og gleði næstu daga með smá hættu á síðdegisskúrum. Sólin og hitinn er alveg smá skemmtileg (þó okkur finnist nú stundum nóg um) en rakinn er alveg óþolandi. Þvotturinn þornar ekki og það er smá rakalykt af sænginni, ég get svo svarið það.

Annars er það auðvitað helst að frétta að við fengum okkar eigin íbúð á mánudaginn og höfum sagt bless við Pissuhúsið um ókomna tíð. Annars er Pissuhúsið orðið heimsfrægt hér í Bergen en bæði blaðamenn og sjónvarpsfréttamenn hafa komið hér við til að taka myndir af dýrðinni. Það var víst sett nýtt met næstu nótt eftir að við fórum eða alls 30 manns sem gistu.

Við ákváðum að fá „lánaðar“ tvær dýnur sem hafa komið sér mjög vel því við erum enn ekki búin að fjárfesta í rúmi.  Íbúðin er annars bara nokkuð fín, flott skápapláss og svoleiðis nokk þó skipulagið á íbúðinni sjálfri mætti vera betra. Ansi skrítið að skipuleggja 40 fm íbúð með 7 fm gangi en það þýðir ekki að fást um það. Við fórum í Ikea strax á mánudaginn með hinum víðfræga ókeypis Ikea strætó. Við keyptum það allra helsta sem safnaðist samt saman í næstum 50.000 krónur! Alveg magnað! Dýrast var að kaupa sæng, kodda, rúmföt og potta og pönnur. Daginn eftir fórum við í Bruktbutikken sem er hérna í göngufjarlægð. Þar gerðum við svo kostakaup á eldhúsborði, stækkanlegu, tveimur stólum, tveimur kollum, brauðhníf og heimsendingu á litlar 125 krónur (u.þ.b. 2500) og fengum fína hillu á baðherbergið í kaupbæti. Ansi ánægð með þau kaup. Svo erum við að ræða við einn kappa útí bæ um rúm sem verður bara vonandi komið í hús um helgina.

Í dag hitti ég svo leiðbeinandann minn í fyrsta sinn og samstarfsfólkið. Allir eru mjög vinalegir og aðstaðan er alveg hreint til fyrirmyndar. Augljóst að Noregur leggur meira uppúr sjávarrannsóknum en Ísland en mér skilst að stofnunin eigi alveg sand af seðlum. Ég er strax komin með aðgangskort, skrifborð, nettengingu og fæ vinnufartölu á næstu dögum. Á morgun fer Kjartan svo í atvinnuviðtal. Krossum auðvitað bara fingur að það gangi vel.

En núna held ég að ég fari bara út í sólina í smá stund. Sjáumst í Bergen!

Lovísa

Kjartan faðmar tré
Það er svo gott að vera hérna, að ég er farinn að taka upp á því að faðma tré! Sjáið bara:

In the ghetto
Svona líta nemendagarðarnir út hérna á Fantoft. Bara hrúga af steypuklumpum og 3000 innfluttir námsmenn. Kósý, ekki satt? (Klikkið á myndir til að skoða stærri.

Síðan hefur netið legið niðri hérna seinustu tvo daga. Það er alveg hræðilegt – sérstaklega á sunnudegi, þar sem allt er lokað hér í bæ. Það er annars bara frekar lítið að frétta. Lovísa reynir að einbeita sér að prófinu sínu, og ég dunda mér eitthvað á meðan. Það kemur lengri færsla fljótlega, þið verðið bara að reyna að þrauka þangað til.

Bergen rigning hvað!
Í dag var sko svo mikil rjómablíða að þessir tveir litlu ferðaglöðu Íslendingar voru að bráðna! Heiðskírt, logn og um 20°C eða með öðrum orðum allt of gott veður til að sitja inni og skrifa um áhrif hlýnunar jarðar á vaxtarhraða fiska. Með ótrúlegum viljastyrk og aga á heimsmælikvarða tókst mér samt að halda út fram að hádegi en eftir það skelltum við okkur niðrí miðbæ með Dananum okkar og röltum þar um í nokkra tíma. Það er rosalega margt að skoða en magnið af skemmtiferðaskipa-túristum er svo svakalegur núna að ég held að helstu túristastaðirnir verði að bíða í nokkrar vikur. Eftir kvöldmat fengum við Kjartan okkur svo göngutúr að Gamlehaugen, setur og garður. Byggt af einkaaðila 1900 en núna notað af konungsfjölskyldunni þegar hún er í Bergen. Ekki amalegt sumarhús, útrásavíkingahallirnar blikna miðað við þetta hús. Það er meira að segja turn sem virðist best henta víðáttufælnum prinsessum með óþarflega sítt hár.

Kemur rosalega á óvart hvað við erum í miklum útlöndum, ef þannig mætti að orði komast. Um leið og við lentum var "útlandalykt" í loftinu og okkur finnst mjög skrítið að vera hérna svona alveg við sjóinn en samt er enginn vindur, allavega ekki enn. Svo er að sjálfsögðu líka allt annað gróðurfar, tré upp um allt. Merkilegt.

Annars fjölgar sífellt í salnum sem við gistum í sem hefur annars hlotið hið óformlega nafn Pissuhúsið vegna megnrar hlandlyktar sem leikur um vitin þegar maður kemur í forstofuna og þar í kring. Til að halda geðheilsu fórum við og spæjuðum um íbúðina sem við fáum og hún lítur mjög vel út, mjög nútímaleg og stílhrein. Einhverjar líkur eru á því að í henni sé þvottavél og uppþvottavél, staðfestingu er lofað á mánudaginn. Við ætlum að taka Ikea rútuna strax á mánudaginn þegar við fáum hana afhenta, frír beinn strætó í Ikea og til baka, um það bil 10 ferðir á dag! Ekki slæmt.

En nú ætla ég að hætta þar sem rassinn á mér er orðinn dofinn á að sitja hérna á malbikinu eða balmikinu (eftir því hvort þú góður lesandi talir íslensku eða bubbísku).

Bless bless, verið hress og étið kex

Lovísa